Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

Skilmálar

Skilmálar fyrir vefverslun

Joserabúðin selur hágæða gæludýrafóður og gæludýravörur. 

Joserabúðin sendir vörur með Dropp á næstu N1 stöð á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að senda með Dropp í World Class í Ögurhvarfi. Einnig er í boði afhending á afgreiðslustaði Dropp á landsbyggðinni og hjá Flytjanda um land allt. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn samningur á milli þín og Joserabúðarinnar. 

Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband við þig við fyrsta tækifæri og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. 
Það tekur í flestum tilvikum 0-3 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru þó að jafnaði ekki sendar út um helgar. 

Upplýsingar um söluaðila

Joserbúðin, Ögurhvarfi 2, 480 5608, joserabudin@joserabudin.is
Joserabúðin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða uppá vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Dropp og Flytjandi sjá um að afhenda vörur til viðskiptavina.

Höfuðborgarsvæðið:
Möguleiki er að nálgast Dropp sendingar samdægurs á virkum dögum á N1 stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og í World Class í Ögurhvarfi sé pantað fyrir kl. 11:00. Sendingar eru annars tilbúnar næsta virka dag.

Heimsending er í boði samdægurs á virkum dögum, sé pantað fyrir kl. 11:00

Landsbyggðin:
Pantanir með Dropp eru afhentar á næstu N1 stöð, á afgreiðslustöð Flytjanda eða hjá samstarfsaðila Dropp næsta virka dag, sé pantað fyrir kl. 11:00 á virkum dögum, annars næsta virka dag á eftir.

Verð á vöru og sendingarkostnaður 

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna. 

Greiðslumátar

Á joserabudin.is er boðið upp á að greiða með greiðslukorti. Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Eurocard/Mastercard gegnum örugga greiðslugátt frá Valitor. 

 Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:

  • Varan skal vera ónotuð.
  • Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
  • Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum og skulu þær vera í söluhæfu ástandi.
  • Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. 
  • Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
  • 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Endursenda má vöru til Joserabudin.is í Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi.

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga. 

Vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.joserabudin.is eru eign Landstólpa ehf. og er öll afritun og endurdeyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Landstólpi ehf. 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands. 

Hafa samband

Velkomið að hafa samband við okkur á netfangið joserabudin@joserabudin.is ef einhverjar spurningar vakna.