Karfan er tóm.
Josera Help Hypoallergenic uppskriftin er kornlaus með meltingarvænum trefjum sem getur stuðlað að heilbrigðari þarmaflóru og komið jafnvægi á meltinguna. Aðeins einn próteingjafi: Hermetia illucens, lirfur svörtu hermannaflugunnar. Skordýraprotein er sjaldgjæft, sjálfbært, hágæða hráefni sem er góður valmöguleiki sem ofnæmisfrítt fóður með góðu próteini og fitusýrum. Fóðrið hentar einnig mjög vel sem útilokunarmatarræði í 3-8 vikur.
Ef bati verður á einkennum eins og kláða eða niðurgangi meðan dýrið er á útilokunarmatarræðinu er mjög líklegt að dýrið sé með ofnæmi fyrir eða hafi þróað með sér óþol fyrir innihaldsefnum í fóðri sem honum var gefið áður. Ef merki um óþol hverfa er hægt að nota þetta fóður í upphafi í allt að ár. Mælt er með því að leita ráða hjá dýralækni fyrir notkun og áður en fóðrunartímabilið er lengt. Próteingjafar: kartöflur, ertur, skordýr. Kolvetnisuppsprettur: kartöflur, baunir, þurrkaður rófumauk.
Samsetning: Heilfóður til að draga úr fóðuróþoli.
þurrkaðar kartöflur, ertumjöl (náttúruleg uppspretta amínósýra), kartöfluprótein, skordýr (Hermetia illucens) 10%, olíur og fita, vatnsrofið ger, þurrkaður rófumassa (náttúrulegur trefjagjafi), Karob ávöxtur af Ceratonia siliqua, steinefni.
Nánari innihaldslýsingu á ensku má finna í pdf skjali hér fyrir ofan.