Lýsing
Groom Professional Almond Detangle Shampoo er sérstaklega hannað fyrir feld sem á það til að flækjast. Það hreinsar feldinn og skilur hann eftir glansandi með ferskan ilm.
Eiginleikar
-Inniheldur möndluolíu sem hjálpar til við að fjarlægja óþægilega lykt og óhreinindi.
-Auðveldar kembingu.
-Mjög drjúgt sjampóþykkni sem þynnist í hlutföllunum 1:10. Hentar vel fyrir gæludýrasnyrtistofur, dýrasnyrta og ræktendur.
Notkunarleiðbeiningar
Bleytið feld hundsins. Berið sjampóið í feldinn og nuddið vandlega. Látið það liggja á í nokkrar mínútur og skolið síðan með volgu vatni. Endurtakið meðferðina ef þörf krefur. Forðist snertingu við augu.