Fara í efni

Karfan þín

Karfan er tóm.

Vörunúmer: 842149

GP Baby Fresh Shampoo

Verðm/vsk
5.343 kr.

Lýsing
Groom Professional Baby Fresh er milt sjampó sem er sérstaklega hannað fyrir hvolpa, en hentar einnig hundum á öllum aldri. Sjampóið skilur eftir sig ljúfan barnapúðurilm sem eyðir óæskilegrii lykt úr feldinum og heldur honum ferskum í marga daga.

Sjampóið inniheldur náttúruleg hreinsiefni og E-vítamín sem hreinsa og næra húð, fituvörn og feld á áhrifaríkan hátt og draga úr hættu á ertingu og þurrki.

Sjampóið er mjög drjúgt, með blöndunarhlutfallið 1:20

Eiginleikar og kostir
Sérstaklega hannað með þarfir hvolpa í huga, en hentar hundum á öllum aldri.
Með ljúfum barnapúðurilm.
Hjálpar til við að eyða óæskilegri lykt úr feldinum.
Inniheldur E-vítamín.
Hreinsar og nærir húð og feld samtímis.
Hjálpar til við að varðveita náttúrulega fituvörn húðarinnar.
Gefur feldinum náttúrulegan gljáa og mýkt.
Auðveldar að greiða úr flækjum.
Freyðir hratt og skolast auðveldlega úr feldinum.

Notkunarleiðbeiningar
Bleytið feld hundsins vandlega með volgu vatni.
Þynnið sjampóið í hlutfallinu 1:20 og nuddið því vel inn í feldinn þar til það freyðir.
Látið sjampóið liggja í feldinum í 5–10 mínútur svo innihaldsefnin fái tíma til að virka.
Skolið feldinn vandlega þar til allt sjampó hefur skolast úr.
Endurtakið þvottinn ef þörf er á meiri hreinsun.

Nafn GP Baby Fresh Shampoo 1L
Verð
Verðm/vsk
6.630 kr.
Birgðir 0
Stærð
1 L

Nafn GP Baby Fresh Shampoo 450 mL
Verð
Verðm/vsk
5.343 kr.
Birgðir 13
Stærð
450 ml

Verðm/vsk
5.343 kr.