Lýsing
Groom Professional Coat Revitalize Tropical Conditioner er endurnærandi hárnæring fyrir þurran, líflausan og skemmdan feld. Hún veitir húð og feld raka og næringu, endurheimtir náttúrulegt útlit feldsins, gefur honum fallegan gljáa og gerir feldinn auðveldari í meðhöndlun, þ.e. auðveldar burstun og greiðslu eftir bað.
Helstu kostir
Veitir húð og feld raka og næringu.
Gefur feldinum fallegan gljáa.
Hjálpar til við að endurheimta náttúrulegt ástand feldsins.
Hentar sérstaklega vel fyrir þurran, daufan og skemmdan feld.
Gerir feldinn mjúkan og auðveldari í burstun og greiðslu.
Skilur eftir sig ferskan, ávaxtakenndan ilm.
Hentar fyrir hundasnyrtistofur, fagfólk og ræktendur.
Notkunarleiðbeiningar
Þvoið hfeldinn fyrst með viðeigandi sjampói.
Berið hárnæringuna í blautan feldinn og nuddið vel svo hún dreifist jafnt.
Látið hárnæringuna virka í 5 mínútur.
Skolið feldinn vandlega með volgu vatni.
Endurtakið ef þörf krefur.
Varúð: Forðist að hárnæringin komist í snertingu við augu.